02febrúar
ég kemst nebbla ekki inná þessa í ungó...
góðar stundir
Dr.Beck
09nóvember
tíhíííí.... vei vei Ellen er að koma í kvöld!! það er sko skemmtó! Nú er gaman, líka af því að við redduðum okkur loks þrífukonu sem er einmitt að ryksuga fyrir aftan mig as we speak, hún er svaka dugleg en það er ekki það besta..það besta er að hún er með bleikt hár! hversu töff er það að hafa þrífkonu sem talar ekki stakt orð í ensku og er með bleikt hár ! vúhú!
02nóvember
Það er komin nóvember. Ég kom í enda ágúst, ég er búin að búa í Debrecen í tvo mánuði, mér finnst það bara alveg slatti ég veit ekki með ykkur.
Púff ég þarf svo mikið að læra að það er bara brandari, organic chemistry og biophysics bækurnar sitja hérna á skrifborðinu mínu og öskra á mig ; Lestu mig ég er ógeðslega flókinn og leiðinlegur og þú þarft að læra mig utan að! hahaha!...svona hlæja þær að mér af því að ég kann þær ekki utan ad. Hver talaði mig eiginlega inná þetta?
Það er byrjað að snjóa í Debrecen, ég er með heimþráð....
30október
já mér finnst skemmtilegra að þurfa ekki að rýna í það sem ég les eða skrifa og hef því ákveðið að stækka þetta dúllulega letur..ef þið eruð ósammála þá mæli ég bara með því að þið pírið augun þegar þið lesið bloggið mitt hér eftir.
En ef þið hafið ekki verið að fylgjast með þættinum hingað til og voruð að stilla yfir á Beck´s Anatomy þá er staðan þannig að ég bý í Ungverjalandi. Já ég veit þetta er ótrúlegt en þannig er nú bara staðan. Það merkilega við þetta er að ég hef hingað til slitið skónum á Íslenzkri grund og þar af leiðandi aldrei þurft að vera neitt að vesenast í því að stilla klukkuna mína eftir tiktúrum annara (nema ef ske kynni að hún hafi orðið batteríslaus, sem er sjaldan því ég er betri í að týna hlutum heldur en að eiga þá svo lengi að batteríin klárist). En í dag gerðust þau undur og stórmerki að ég græddi klukkutíma! já ég vaknaði í morgun kl 10 og fór upp í skóla og var komin þangað með Hrabbó kl11..að ég hélt!! kemst ég þá ekki að því bara að klukkan var ekkert 11..onei...hún var 10! og nei ég lenti ekki í svona "timawarp" (svo maður sletti) heldur er bara klukkan komin á vetrartíma hérna í ungó. Alveg finnst mér þetta magnaður andskoti, ha og núna er ég að hugsa um að fara að sofa og nýta þennan aukatíma í einhvern dýrindisdraum....ummm já en að þessum hugrenningum loknum og ég vona að ég hafi ekki drepið ykkur úr leiðindum þá kveð ég að sinni. Fylgist vel með næsta þætti af Beck´s Anatomy..mun hún finna sinn eigins Dr.McDreamy?? það kemur allt í ljós......bless...
27október
hæjó spæjó nú er sko kátt á Komlóssy! ha já þannig er að hann Aggi leikstjóri, góðkunningi og vinur er búin að vera í brúðkaupsferð með honum marian sínum var í Búdapest og svona og var akkúrat að fara yfir til Rúmeníu og haldiði ekki að hann hafi bara munað eftir litlu kellunni í Debbó slegið á þráðinn og kíkt á hana! og ekki nema hvað að nú er ég að passa tölvuna hans og verðmætin (svaka mikið stolið og rænt í Rúmó nebbla) meðan þeir skruppu yfir landamærin! Þeir reyndu nú að fá mig með sér en ég bara gat ekki gert það, allt of mikið sem ég þarf að læra um helgina! ýkt fúlt samt því það hefði pottþétt verið geggjað stuð, en jæja svo nú bíð ég bara eftir því að þeir komi aftur og mar kveðji þá :( en samt ekkert smá gaman að fá svona óvænta heimsókn! Og talandi um heimsóknir þá er hún ELLEN að KOMA til okkar 9.nóv!! jíhí á verður nú ekkert smá gaman! jei það er allt eitthvað svo gaman í dag! er núna að fara í bekkjarparty þar sem við ætlum að horfa á leikinn(ísl vs.ung) bara í tv-inu en það er bara mjög líklegt að ég fari á leikinn á morgunn þar sem þetta er nú bara einhverja 120 km frá Debbó pælingin er að leigja bara bíl og skella sér! það er sko allt að gerast ég segji ekki annað!
alltaf stuð í ungó ha?
20október
jiii ég held að málið sé bara að vera ekki með neinar yfirlýsingar um það að ætla að vera "duglegur" blogga það virkar greinilega ekki sko....jiii ég bara biðst forláts á þessu öllu saman! en tja kanski bara því það er ekkert merkjó (gavuð sjáiði málfarið,þetta er ekki í lagi!) búið að gerast hérna úti, nema það er hætt að vera heitt og er byrjað að þokast í átt að kulda er allavega hætt að mæta á stuttermabolnum í skólann. En já nú þarf maður að fara að vera duglegur því nú er sko svakatörn að fara að taka við hjá manni, næstum próf í hverri víku og ég veit ekki hvað og hvað

það er svo mikið að læra að það mætti halda að ég væri í læknisfræði! En ég nenni ekki að tala um skólann, það er næstum það eina sem ég tala um á hverjum degi svo það ætti að vera nóg finnst mér allavega. Víí svo ætlar pabbi minn að senda mér pakka með ýmsu gúmmó bráðum nammi og fleira svona smálegt sem ekki fæst hérna í ungó eins og Season all. Alveg er það magnað hvað maður var orðin líkamlega háður season all, ha ég ætlaði til dæmis um daginn að fá mér spagettí um daginn og allt í lagi með það nema að svo er maður búin að skella öllu á disk og þá......hvar er seasonallið? hvað á ég að gera? þetta var agalegt móment sem ég er þó búin að jafna mig á núna en ég hlakka mikið til þegar seniorAlli (eins og ég erfarin að kalla það) kemur loks til mín...
ÚÚÚ en að ALLT öðru í dag gerðist sá merki atburður að ég fór í fyrsta skipti í DÝRAGARÐ! já alveg rétt ég hef aldrei farið í dýragarð. Þannig var að við (ég, Axel og Sigurbjörn) vorum að læra fyrir biophys labið á morgun og fengum þessa snilldarhugmynd þar sem það er nú dýro hér í Debbó! og það var svaka gaman nema við vorum eina fólkið í dýragarðinum og eiginlega ölldýrin voru sofandi en það er plönuð önnur ferð í vor!!
en já ok nóg í bili
ú nei hehe alveg rétt ég er skólameistari í fótbolta

05október
jæja jæja sælinú öll sömul einu sinni enn, já nú eru skutlurnar komnar með netið í skutluíbúðina og eru sífellt að skutlast eitthvert á alheimsvefnum...nei djók. En já héðan úr Ungó er bara allt fínt að frétta loksins í dag var ekki 25 stiga hiti heldur bara svona bærilegar 17 hugsa ég sem er frábært fyrir hitapokann mig! á morgun fáum við svo fyrstu gestina til okkar þegar Frænka og Guðjón koma að kíkja á hana Hrafnhildi sína (þeir sem þekkja hrabbó vita hver frænka er, hún er bara frænkan) það verður nú skemmtó.
Að allt öðru um seinustu helgi var Norwegian Babtism og fyrir þá sem ekki vita er það sumsé busun á skandinavísku læknanemunum og er í raun ratleikur. Hehe sem var svaka stuð þar sem ég þurfti til dæmis að vaða út í gosbrunn að finna bjór og drekka hann sleikja rjóma af liðsfélaga mínum og finna líffæri í bala blindandi ójá þetta eru sko læknanemar (innyflin voru þó ekki mennsk heldur svínsk) svo var þetta sko allt til að safna stigum hehe ýmislegt var sko hægt að gera til að safna þeim og samtals fengu fjórar augabrúnir að fjúka í liðinu mínu( við vorum 4 en ég er samt með mínar og lindsey líka ) hehe mjög fyndinn þynnkueffect það! já þetta var sko gaman
ú ú og haldiði svo ekki að gamla kempan hún ég hafi farið á Handboltaæfingu á mánudaginn!! ójá það var geðveikt!! ég reyndar dó held ég fjórum sinnum á þessum tveim tímum sem fóru í þetta en vá hvað það var gaman!! harðsperrurnar og blöðrurnar voru reyndar ekki eins töff, gat ekki sofið í fyrri nótt fyrir hassperum! en það verður sko farið aftur ójá og ekki nóg með það heldur er ég að fara að keppa í fótbolta á laugardaginn...já það er sko svona mót á milli læknaskóla í ungverjalandi og við íslensku stelpurnar gátum ekki verið minni menn enn strákarnir (humm hljómar eitthvað skrýtinn þessi..ojæja) og erum með lið svo það verður spennó hvort mar rústi þessu ekki!
en jæja ég verð víst að læra eitthvað hérna úti líka svo ég ætla að fara að gera það en ég lofa að það verður ekki jafnlangt í næstu færslu.....lofa
adios amigos .....doktorinn
p.s Áslaug ég er sammála sömuleiðis bjórinn er bara ekki eins! en hey koddu bara hingað ;) eða eitthvað.....
18september
hallú jaeja nenni ekki ad hafa tetta langt vildi bara láta vita ad ég bíst vid netinu til okkar í tessari viku sem er gaman og já ú ú vid keyptum GEDVEIKA kaffivél sem er frábaer tví tad er ekki haegt ad fá gott kaffi í ungverjalandi tví ungverjar eru hálfvitar en jú nú er haegt ad fá gott kaffi heima hjá mér!!! ví! tad er enntá heitt og sérstaklega rakt samt í dag allavega bara svona hitamistur og laeti. en já tangad til naest elskurnar
fadmid hvort annad!
frau doctor
p.s ég sakna ykkar líka allir úr stúdó!! Hey bara hópferd til ungó
12september
jaeja ég bidst innilega forláts á töfum á skrifum en vid erum ekki komnar med net í íbúdinni og tess vegns er madur svona lélegur. En já semsagt tá erum vid hrafnhildur komnar med GEGGJADA íbúd vid hlidina á skólanum sem er svaka flott og stór í mjög nylegu húsi sem var byggt 2001 held ég, penthouse íbúd med stórri stofu, tremur herbergjum sem sagt eitt fyrir Hrafnhildi, eitt StudyRoom (ójá taer eru svo pró) og einu Studdherbergi (sem er sumséherbergid mitt ég á bara eftir ad finna stud í tad

. Húsid sem vid erum í eru naestum bara stúdentar held ég til ad mynda eru Haffi(Hrabbós boytoy) og Kári á nedstu haedinni sem er mjóg skemmtó.Eini ókosturinn á íbúdinni er sá ad vid erum á fjórdu haed og tad er enginn lyfta! en í stadinn verd ég örugglega komin med buns of steel eftir nokkrar vikur :) Vid skelltum okkur til Búdapest um helgina sem var svaka stud, madur svona versladi pínumikidlítid en tad voru allt bara naudsynjar ég lofa! sérstaklega tar sem ad IKEA er í Búdapest

Úff annars er ég meira bara í tví akkúrat núna ad kafna úr hita tví hér eru einhverjar 27 grádur held ég og sól og eina talvan sem ég fékk á tessu blessada netkaffi er í sólinni

svo ég aetla ekki ad segja meira í bili en LOFA ad koma med naestu fréttir MJÖG brádlega, en náuna er ég ad brádna svo ég aetla ad skoppa heim í sturtu ádur en ég fer í naesta tíma!
luv ya all
og kved ad sinni
el docktore!
28ágúst
ji minn eini þá er hún loksins komin út í þetta í ALVÖRU jii hún er svo sannarlega lent í Debbó sit hérna í íbúðinni hennar Hrabbó skvabbó, hún og Strúna eru uppí skóla að læra, ég er búin að fara að skoða hann aðeins og svona þetta er allt svoldið magnað og svolítið skrýtið ha....ú ú já ég er líka sumsé búin að kaupa ungverskt símakort svo nú er ég bara með ungverskt númer sem er
: 0036-0670-633-0684......þannig að ef þið viljið hringja í mig þá er það þetta :)
en annars byrjar sumsé ungversku námskeiðið í fyrramálið og þá byrjar þetta allt saman svona af meiri alvöru þá hittir maður allt gengið sem maður verður með í bekk og allt það.
hehe annars gekk ferðalagið bara nokkuð vel svona fyrir utan auðvitað tafir og dónalega gúllaskellingu sem ruddist fyrir framan mig í tjekkinninu og sat svo við hliðina á mér í helv..vélinni! hehe svo var það nú líka svoldið fyndið því þegar komið er á blessaðan flugvöllinn í Búdapest þá tekur við eitt hið minnsta farangursbretti í heimi held ég það er minna en á Reykjavíkurflugvelli og þá er ég ekki að ýkja! Nema hvað eins og gefur að skilja með svona lítið bretti er ansi þröngt um manninn að ná í blessðar töskurnar og svo kemur mín dúlla þarna rúllandi akkurat þegar ég er einmitt að tala við Hrafnhildi í símann og ég skýst þarna inn milli fólks og ætla nú að ná góðu taki á dúllunni nema hún er helvíti þung og sleppur aðeins of langt frá mér þannig að þegar ég er að draga hana af dreg ég eiginlega næstu þrjá menn við hliðina á mér til baka líka! hehe sem var mjög fyndið og eiginlega sérstaklega fyndið þar sem tveir af þeim voru mjög Stórir menn í Hells Angels Croatia jökkum!!! hahahahaha það var fyndið
en jæja þangað til næst¨!